|
|
:: þriðjudagur, nóvember 16, 2004 ::
 Hæ litla, hèrna er snjòrinn sem èg var ad reyna ad senda til thìn med jòlalögunum, enjoy - Begga stòra sys :)
Myndina sendi Berglind
:: Hugra 7:18 PM ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 03, 2004 ::
Er það ekki góð vísbending um það að maður hafi ekki verið duglegur að blogga þegar maður gleymir passwordinu af blogginu sínu?? Eða er þetta vísbending á alzheimer Lights?? either way, þá sparkaði þetta dálítið í rassinn á mér.
Nú er Kolla nýfarin og ég ein að passa Hildi í viku, því að það er vetrarfrí!! Ég er enþá veik, god damn it .... þriðja vikan og ég ekkert að skána, lifi á gigtar-og sýklalyfjum :( Verkirnir fóru nú samt alveg þegar Kolla var hérna því að það var svo gaman hjá okkur ;) París var ÆÐI og ekki skemmdi það fyrir að við sáum sjálfan Gérard Depardieu!!!! Stóðum 10CM frá honum og við náttúrulega misstum okkur og öskruðum næstum því (hehe næstum og ekki næstum, ég held að ég hafi nú sagt ansi hátt.. Ó MÆ GOD.. ÞETTA ER GERARD DEPARDIEU!!!!!) Haha!!
Skoðuðum Allt Louvre Safnið, Fórum á toppinn á Eiffer turninum, sáum þvílíka "trúargöngu" hjá Notre Dame, fullt af fólki og fórum auðvitað að djamma í París og hittum svaka skemmtilega RÍKA ítala sem við djömmuðum með. Hittum reyndar fyrst einhverja plebba sem ætluðu að sýna okkur "djammið" en svo komust þeir ekki inn því að þeir voru ekki klæddir upp, hehe!! Annar þeirra var meira að segja singer "it's my profession" og svo Söng kauði fyrir okkur. Ég hélt að ég yrði ekki eldri;) Við vorum fljótar að stinga þá af *roðn* ;)
Úff nú þarf ég víst að fara damn it!! En ég er búin að láta inn FULLT AF -MYNDUM- :D Enjoy ;)
:: Hugra 10:43 AM ::
...
:: þriðjudagur, október 19, 2004 ::
www.Skype.com :D
Allir að ná sér í skype til að lækka símreikninginn :D Ég veit að ég á ekki eftir að hringja mikið ef allir fá sér svona, sérstaklega familían mín.. Alger snilld!! Kannski ég eigi eftir að koma aðeins betur út úr þessarri ferð en Spánarferðinni hérna um árið, 80þúsund kjell f.símreikning í 3mánuði...(Semsagt samanlagt 160þúsund hjá mér og Kollu) Já, enginn verður óbarinn biskup segi ég nú bara ! ;)
Ef fólk vill ekki verða tæknivætt þá er síminn minn hérna úti 00352-021227970
Og ég er komin aftur með mitt ástkæra ylhýra númer, 869-3878 !! :D ekkert 695bull lengur:D
Annars er ég Flutt til hálfs á WESTCOAST síðuna og mun blogga þar...
Ég er nebblega ekki alveg viss hvort að ég eigi að vera að nenna að skrifa á 2.stöðum, en tími náttúrulega ekki að eyða litlu elskunni minni ! :)
Allaveganna þá er ég farin að horfa á Friends m.Frönsku tali !! alltaf jafn dugleg ;)
:: Hugra 4:56 PM ::
...
:: þriðjudagur, október 12, 2004 ::
úff já það er langt síðan ég skrifaði síðast.. Spurning hvort að það sé vegna letis eða hvort að það sé vegna þess að ég er ekki viss um hvort að ég eigi að halda þessarri síðu þar sem við west-coast skutlurnar erum komnar með nýja. Hmm.. kannski maður verði bara gráðugur og duglegur og skrifi bara á báðar ;)
Við Au-pairurnar fórum allar til Belgíu um helgina, nema Berglind sem þurfti að vera heima *reiðiskall* :( Ferðin byrjaði dálítið skrautlega þar sem við vorum að djamma kvöldið áður, Karitas var að passa þannig að hún bauðst til að sækja mig í morgunsárið. Bjartsýnismanneskjan ég hélt auðvitað að það yrði ekkert mál að vakna kl.8, en þar sem við komum dálítið seint heim svaf ég yfir mig:S Man ekki einu sinni eftir að vekjaraklukkan, sem ég stillti, hafi hringt:S Vaknaði við að Karitas hringdi um kl.9 í mig þar sem ég lá undir sæng og sagðist vera fyrir utan. Ég náttúrulega STÖKK af stað í einum grænum... Fjúff ekki það skemmtilegasta sem ég hef lent í;) Svo á leiðinni í lestinni sofnuðu Anna og Guðný en Ég Karitas og Irma skemmtum okkur konunglega við að rifja upp fóstbræður!!
Eftir Laaa-hahaaanga Lestarferð (að mér fannst) komum við loksins út í Brussel. Fundum McDonalds og ég skellti mér á einn kjúllaborgara sem ég borðaði u.þ.b. 2bita af :S hmm... verð að bæta úr því seinna, get þá fengið mér kjúllaborgara án samviskubits og mikið af frönskum! :) Alltaf gott að geta friðað samviskuna!
Við fórum svo á verslunargötuna (ofcourse) en það var víst ekki alveg verslunargatan sem stelpurnar höfðu heyrt um. Ég hef náttúrulega alltaf farið að versla þarna þegar ég fer til Brussel, en mundi svo allt í einu eftir einni verslunargötu sem ég og Kolla fórum á hérna fyrir árið... og GETTU HVAÐ KOLLA.. Ég sá aftur strákinn "I'm looking for funky people like you"!! Ekkert smá skrýtið. Annars gátum við alveg gert góð kaup þar á bæ og svo fóru stelpurnar heim og ég til Guðný frænku og Co.:) Þar var alveg æðislegt, eins og alltaf!! Fórum á markaðinn og Skruppum aðeins upp í sveit í heimsókn til Mömmu og pabba hans Gutta og þar fékk ég ágæta frönskukennslu. Held að ég hafi lært jafn mikið á þessum eina degi og heila mánuðinum hérna í Lúx.
tók síðan lestina heim alein heim og sem betur fer fékk ég lánaða bók hjá Guðný því að annars hefði mér nú leiðst heldur betur mikið. Þegar ég kom svo til Lúxembourgar fann ég ekki strætóinn sem fer til Junglinster þannig að ég ákvað að labba smá um (hmm.. ekki sniðugt að labba ein um á kvöldin, sérstaklega ekki ef þú ert lítil og ljóshærð) :S Enda fékk ég að kenna á því. Þegar ég var komin dálítinn spöl frá lestarstöðinni ákvað ég að kaupa mér e-ð að drekka. Ég stoppa til að leyta mér að klinki en sé þá að ógeðisdónakallinn sem hafði labbað á eftir mér stoppaði líka. Mér leist ekkert á blikuna og ákvað að hætta við kaupin. Labbaði af stað og viti menn, ógeðið labbaði líka af stað. Hmm.. ég ákvað að stoppa aftur og þykjast vera að leita að einhverju og jú jú hann stoppaði líka. Þá lét ég þetta bara gott heita og hóaði í leigubíl sem kostaði mig litlar 55 Evrur !!! :S En svona til að líta á björtu hliðarnar eða hliðina, þá lenti ég ekki illa í neinum dónakalli ;)
Annars fór ég í frönskuna í gær, gekk alveg ágætlega bara! en ég er að verða gráhærð á því að kennarinn kallar alltaf einn og einn upp og lætur þá standa fyrir framan allan bekkinn og tala. Ekki alveg það sem ég óskaði mér;) Við Berglind ætluðum svo að leigja okkur video í einum sjálfsalanum í "mallinu" en eftir 25mín akstur komst ég að því að maður þarf að hafa einhver sérstök videokort.. Við ákváðum þá bara að horfa á Friends seríuna sem ég var að kaupa mér.. Klikkar ALDREI ;)
Anyways þá var ég að láta inn nýjar myndir frá djamminu á föstudaginn og 2túristamyndir frá Brussel, myndavélin tók upp á því að verða batterýslaus mér ekki til mikillar skemmtunar.. Myndirnar eru HÉR og HÉR
Já já þá er ég farin að taka til og Svo horfa á Ally McBeal !!
Svo eru það bara 11dagar í að Kollan mín kemur í heimsókn !!!!!!!!!!! :D :D :D Get ekki beðið
Ciao Mi amigos! :)
:: Hugra 7:30 AM ::
...
:: mánudagur, október 04, 2004 ::
Gooooood morning Iceland !
Nu sit eg her i EFTA domstolnum og bid eftir ad malid mitt "ad leggja ologlega" verdi tekid fyrir ! Tessi logga skal fa tad otvegid ! :)
Nei segi svona, er ad bida med Kristinu tvi ad eg a ad maeta i fronskuna eftir klukkutima og tad tekur tvi ekki ad fara heim, to ad mig langi alveg rosalega ad fara heim og skrida bara undir saeng, er svo treytt :/ Well well well.. eg held ad tad se bara ekkert nytt ad fretta af mer. forum ut ad borda i gaer med ommu og afa Hildar sem eru nuna i heimsokn, ja Habba eg fekk mer Spaghetti Alla Carbonara... mmm (am I killing you);) haha !!
Heyridi ju meira logguvesen herna i Luxara landinu. Vid lentum natturulega i loggunni aftur um daginn, Saranda var a bil og loggan elti hana og hun var latin blasa og alles (hun var bla edru, gott a tessa biiiiib loggu) og svo asakadi hun okkur um ad gefa ser fingurinn. Fine !! tad er natturulega ekki allt i lagi. Sidan lentu stelpurnar aftur i tessum yndum nuna a fostudaginn tegar eg var ad passa. Taer voru vist alveg i ruglinu, eda sultunni eins og Jonsi ordadi tad svo skemmtilega herna um daginn ;) Anna braut vist glas og teir skipudu henni ad tina upp glerbrotin med berum puttunum og foru svo ad rifa kjaft eins og teim einum er lagid! tid getid lesid allt um tessa sogu a einhverju blogginu hja stelpunum :)
Vid aetludum svo ad reyna ad kikja a djammid a laugardeginu, Karitas hin utsofna var a bil (hehe hun svaf til kl.19:00.. how is that possible) Gudny og Berglind strax komnar i tvilikan djamm filing tratt fyrir ad hafa verid ad skralla daginn adur en tvi midur vard nu bara ekkert ur tessu kvoldi og endudum vid a Select med ollu tilheyrandi, is, nammi og snakki.. sem er enta til heima tvi ad eg hafdi ekki orku til ad borda tad tegar eg kom heim, sofnadi a no time !!
Annars aetla eg bara ad fara ad slutta tessu tvi ad eg er ekki med islenskt lyklabord herna og tad er ad gera mig grahaerda!
Svo hvet eg alla til ad kikja a nyja bloggid okkar Westcoastschicks, eda aetti eg ad kalla tad saumaklubb hannesar..
Either way, kikid a tad :)
:: Hugra 7:23 AM ::
...
:: föstudagur, október 01, 2004 ::
Oh Bryndís var að senda mér svo sorglega frétt rétt í þessu, slóðin af henni er HÉR
Hvet ykkur öll að leggja inn smáræði fyrir þessa litlu sætu stelpu.. ég er búin að leggja mitt af mörkum..
Margt smátt gerir eitt stórt :)
Annars er bara ekkert planað hjá mér núna á föstudagskvöldi. Allar au-pair stelpurnar eru að fara að djamma en ég er að passa:´(
Ætla samt ekki að láta mér leiðast, heldur fara á samviskulaust kaloríufyllerí og horfa á eitthvað gott í imbanum ;)
Já já Nú verð ég að fara því að ég er að horfa á Joey :D Hef þurft að hlaupa til Hildar og vinkonu hennar á 5mín fresti því að þær eiga það til að fara í smá fýlu út í hver aðra en hingað til hefur mér alltaf tekist að leysa það og vona að það verði svoleiðis áfram ;)
Joey here I come :)
:: Hugra 3:42 PM ::
...
:: fimmtudagur, september 30, 2004 ::
Moldvarpa var svarið !!!!!
Já haldiði ekki að hún systir mín hafi bara unnið sér inn pakka frá Lúxembourg? Gáfurnar eru náttúrulega í ættinni sjáiði til ;) hehe... Ég kem með aðra verðlaunargátu seinna þegar ég rekst á eitthvað annað ótrúlegt!
Annars var svaka djamm á okkur í gær, byrjuðum hjá Berglindi og það var bara allt of skemmtilegt þar... og Hugrún hin duglega er strax búin að láta myndirnar inn og þær eru HÉR !
Fórum svo á ditch, leiðinlega skemmtistaðinn sem við fórum á á laugardaginn síðasta, nema hvað að nú var hann Klikkaður !!! bara gaman !!!
Ég fór svo í minn fyrsta frönsku tíma í gær... eða ætti ég að segja "hvernig á að bera nafnið Hugrún fram" tíma ! held að það hafi verið tekið fyrir á 5mín fresti.. ég þurfti meira að segja að stafa það oftar en einu sinni ! jább, gaman að vera íslendingur í útlöndum;) Annars gekk tíminn bara amazingly vel, kann núna að segja nokkrar setningar og er meira að segja komin í "study group" með 3sænskum stelpum!! Hversu fyndið er það!! Já en ég gerði nú smá gloríu á leiðinni heim. Lagði nebblega í bílastæðahús þarna rétt hjá :S Borgaði brúsann (kostaði mig heilar 4evrur.. ekki sjén að ég leggi þar aftur á meðan ég er í tíma) og labba svo út í bíl. Eins og margir vita þá á ég mjög auðvelt með að tína hlutunum, hendi þeim bara einhvert og finn svo ekki aftur. Það kom fyrir miðann sem maður notar til að komast út. Ég henti honum einhversstaðar á milli sætanna og hélt svo að ég hefði bara gleymt honum í vélinni sem maður borgar. Ég labba til öryggisvarðanna, sem töluðu ekki ensku og útskýrði á táknmáli að ég hafi gleymt miðanum mínum í vélinni upp. Já eftir mikið handarpat skildu þeir mig og löbbuðu með mér upp sem tók alveg sinn tíma. Þeir fundu ekki miðann en ég setti bara upp litla saklausa svipinn og þeir gáfu mér annan miða til að komast út! jæja, eftir 20mín vesen sest ég upp í bílinn og keyri út. Hvað haldiði að ég hafi svo fundið... jább miðann minn !! hehe ég hló og hló... could I be any more Blonde (með Chandler áherslum) ;)
ahh já, svona er að vera dálítið utan við sig...
Jæja ætli ég fari ekki að klára að taka til og svo að finna eitthvað að snæða, mig langar svo í junk food eftir þetta mega djamm í gær en ég er bíllaus upp í sveit. Systir mín góða var svo "sniðug" að láta mynd af Subway á síðuna sína and it's killing me !! Damn it Carl !!
I'll see you..... or I'll hear you ;)
:: Hugra 11:42 AM ::
...
|